Ár frá ári hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem komast í þennan flokk en til að ná svo langt þurfa þau að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
? Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
? Líkur á alvarlegum vanskilum eru minni en 0,5%
? Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
? Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
? Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
? Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
? Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
Það er ljóst að þennan árangur má þakka starfsmönnum Rafeyrar þar sem hver hæfileikamaðurinn á fætur öðrum leggur sitt af mörkum.