21.05.2025			
	
	Rafeyri hefur fóstrað margan góðan drenginn og þetta árið er engin undantekning hvað það varðar. Tólf einstaklingar bætast við í hópinn fyrir sumarið og eru þeir allir í rafvirkjanámi. 
 
	
		
		
		
			
					17.05.2024			
	
	Blakdeild KA efndi til fyrirtækjamóts í blaki fimmtudaginn 16. maí 2024.
9 starfsmenn Rafeyrar og ein blakstjarna frá Raftákni lögðu saman krafta sína og mættu til leiks og sýndu alskonar tilþrif. 
 
	
		
		
		
			
					20.02.2024			
	
	Rafeyri ehf. á Akureyri hefur fest kaup á Víkurrafi ehf. á Húsavík. Grundvallaratriði er að starfsmenn Víkurrafs þekkist boð Rafeyrar um að gerast hluthafar í Víkurrafi þannig að fyrirtækið verði áfram húsvískt. Þegar liggur fyrir að nánast allir starfsmenn munu verða eigendur þó að Rafeyri komi til með að eiga meirihlutann.
 
	
		
		
		
			
					03.05.2023			
	
	29 ár eru frá stofnun Rafeyrar og fögnum við því með gómsætri tertu.
 
	
		
		
		
			
					16.02.2023			
	
	Mætum því óvænta af öryggi var yfirskrift Forvarnarráðstefnu VÍS 2023.
Rafeyri leggur áherslu á að starfsmenn fyrirtækisins séu sjálfir ábyrgir fyrir eigin öryggi og annarra og að þeir geti mætt fjölbreyttum áskorunum í vinnuumhverfi og verkefnum af kunnáttu og leikni.
 
	
		
		
		
			
					10.02.2023			
	
	Bra Kasser er fyrirtæki í Noregi sem sérhæfir sig í framleiðslu á frauðkössum fyrir laxasláturhús og hefur í því sambandi byggt verksmiðjur þar sem mannshöndin kemur hvergi nærri flutningi á kössum frá framleiðslu til vinnslu. Krafan um afhendingaröryggi og rekjanleika er mikil og eins þarf afkastagetan að vera mikil. Bra Kasser hefur nú selt í samstarfi við Raven ehf., Raftákn ehf. og Rafeyri ehf. tómkassakerfi til Austevoll Laksepakkeri AS í Noregi sem er staðsett í eyjaklasa u.þ.b. 30 km suður af Bergen.
 
	
		
		
		
			
					18.08.2022			
	
	Það þurfti allar hendur á dekk þann 17. ágúst síðastliðin þegar stærsti einstaki spennubreytingaráfanginn á Akureyri frá upphafi var tekinn fyrir. Alls voru 57 rafmagnstöflum spennubreytt. Verkefnið er unnið í samvinnu við Norðurorku og er liður í yfirstandandi eflingu á rafflutningskerfi Akureyrar.
 
	
		
		
		
			
					31.03.2022			
	
	Við óskum eigendum og starfsfólki Húsasmiðjunnar, Ískrafts og Blómavals til hamingju með stórglæsilega verslun að Freyjunesi 1-3 á Akureyri. 
 
	
		
		
		
			
					22.11.2021			
	
	Um þessar mundir stendur yfir vinna við lagningu og tengingu 220 kV háspennustrengs þvert yfir Eyjafjörðinn.
 
	
		
		
		
			
					15.10.2021			
	
	Orkuskiptin eru það sem er brennur á margra vörum þessi misserin og Rafeyri lætur ekki sitt eftir liggja.