Rafeyri kaupir Víkurraf á Húsavík

Áður hefur Rafeyri gert álíka kaup á Eskifirði þegar Rafmagnsverkstæði Andrésar ehf. var keypt og hefur það gengið farsællega.
Með kaupunum hyggst Rafeyri hafa á að skipa sterkari heild sem spannar Norðausturland og Austfirði. Rafeyri hefur þegar innan sinna raða öfluga fagmenn í tæknideild fyrirtækisins og munu þeir verða starfsmönnum Víkurrafs til fulltingis. Ætlunin er að efla starfsemina á Húsavík með fjölgun starfsmanna og stjórnunarstuðningi frá Rafeyri.
Áki Hauksson hefur verið framkvæmdastjóri Víkurrafs og mun halda því áfram enn um sinn.
Vonandi verður þetta báðum félögum til góðs sem og samfélaginu í Þingeyjarsýslum.